"Smökkum sörurnar,
mömmukökurnar,
makkarónurnar,
eplabökurnar.
Hvernig smakkast svo?
Þetta er dásamlegt.
Jahá, þá mest er nú gaman, ahaaa!
Að við skulum vera saman, ahaa!"
Ég sit hérna í rökkrinu í litlu sætu íbúðinni okkar í Stokkhólmi og raula þetta lag fyrir munni. Ég las bloggið hennar
Möddu í gær og hef verið alveg húkkt með þetta lag á heilanum síðan. Hef oft heyrt það áður, en í gær límdist það alveg gjörsamlega.
Síðasta vika var pínu klikk. Ég ákvað á síðustu stundu að koma ekkert heim frá Þýskalandi og eyða helginni bara í Berlín og halda svo áfram til Stokkhólms. Ferðin var s.s. flogið til Frankfurt, keyrt til Nürnberg (reyndar á 220 km hraða, ég hélt ég myndi deyja þar og nú á autobahn-anum), keyrt til Munich, flogið til Hamburg, lest til Berlín til Tótu og Baldurs og svo loks flogið til Stokkhólms.
Helgin í Berlín var algjört æði. Tóta, Baldur, Örnólfur og Lena eru náttla svo frábær að það er ekki annað hægt en að skemmta sér með þeim. Við Tóta og Baldur fórum á Mr.Ping, afar merkilegan PingPong stað á föstudagskvöldið. Hrárri bar hef ég ekki séð, bara lofræstistokkur í loftinu, hálf málað gólf (það var ansi lítið eftir af málingunni) og pingpong borð á gólfinu. Í kringum borðið hljóp svo 40 manns í pingpong. Ef maður tapaði einu stigi, þá varð mar úr og þannig týndist úr hópnum þangað til að bara 3 voru eftir. Þá var sprett ekkert smá í kringum borðið. Ég var skítléleg í borðtennis, en þetta var rosa stuð fyrir því.
En mikið er heimurinn litill, þegar ég sit þarna inni þá kemur labbandi inn strákur. Þá var þetta bara Tommi LeMarque (afsakið mögulega nauðgun á eftirnafninu) sem var með mér í hönnun í Iðnskólanum. Frekar fyndið.. Næsta pleis sem við stefndum á var frekar töff bar sem ég man ekkert hvað heitir. En það kúla var að hann var settur upp eins og heimili. Mar gat sest í eldhúsið, eða borðstofuna eða setustofuna.
Laugardagurinn fór svo í smá búðaráp hjá okkur Tótu og kvöldið í kjúlla og Catan. Afar næs...
En núna er ég s.s. komin til Stokkhólms og er á leiðinni út að borða á Cophanjang með tengdó og Jóni. Þau eru mætt hingað til okkar til að vera á útskriftinni hans Jóns á morgun.