þriðjudagur, mars 13, 2007

..make sure to wear some flowers in your hair!

Ég kíkti til San Francisco í vinnuferð. Þetta var nokkuð þétt og afdrifarík ferð. Held ég listi bara upp það sem ég gerði, ætla ekki að láta ykkur leiðast yfir risa ferðasögu.

  • Vann nýjan Nokia N73 í happdrætti (sem var svo riggað að það var ekki fyndið, en ég er sátt með símann þannig að ég segi ekki orð)



  • Var boðið í heimsókn í höfuðstöðvar Google og fékk mér boozt á booztbarnum og kíkti á aðstæður... ekki slæmt að vinna þarna.



  • Kíkti í kokteil partí til Second Life



  • Hitti gaurinn sem bjó til Tetris og tók mynd af mér með honum (á nýja símann)



  • Fór í það rosalegasta kokteil/networking boð sem ég hef lent í. Það var með goth/SM þema. Það setti mark sitt á marga, og þá helst á bakið á fólki. Ég slapp þó.



  • Keypti mér krúttlegustu myndavél í heimi, hún tekur svona myndir...